Calc skoðað

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Efnisyfirlit

Að nota súmm

Hægt er að nota súmm til að breyta sýn skjalsins og stækka og minnka reitina. Sjá nánar um þetta í almenna hluta OpenOffice.is.

Línur og dálkar fryst

Mynd 1: Frosnar línur og dálkar
Dálka og línufrystingin festir dálka og línur fremst og efst í skjalinu þannig að þær færast ekki þegar skjalinu er flett.

Mynd 1 sýnir skjal með frosnum reitum, svera línan milli lína 3 og 14 og milli dálka C og H tákna mörkin á frosna svæðinu. Búið er að fletta skjalinu upp þannig að línur 4 til 13 sjást ekki og einnig til hliðar þannig að dálkar D til G sjást ekki. Þar sem fyrstu þrjár línurnar og dálkarnir hafa verið fryst haldast þau á sama stað.

Hægt er að frysta línur, dálka eða hvorttveggja í einu eins og hefur verið gert á Mynd 1.

Að frysta línur eða dálka

  1. Smelltu á haus línunnar fyrir neðan þær línur sem eiga að frjósa (þ.e. fyrsta línan sem á að hreyfast) eða haus dálksins sem er hægra megin við þá dálka sem þú vilt frysta
  2. Veldu Window > Freeze.

Sverari lína birtist sem sýnir mörkin milli frosna svæðisins og hreyfanlega svæðisins.

Að frysta bæði línur og dálka

  1. Settu fókusinn á reitinn sem er fyrir neðan línurnar og hægra megin við dálkana sem á að frysta (þ.e. fyrsti reiturinn sem á að hreyfast).
  2. Veldu Window > Freeze.

Tvær sverari línur birtist og allir dálkar vinstra megin við reitinn og allar línur ofan við reitinn frjósa. Ef þú flettir skjalinu fram og til baka eða upp og niður sérðu að þessar frosnu línur og frosnu dálkar eru kyrrir.

Affrysting

Til að affrysta reiti velur þú Window > Freeze. Merkið við Freeze hverfur og frystingin fer af.

Glugganum skipt

Mynd 2: Dæmi um skiptan glugga
Önnur leið til að breyta því hvernig við sjáum skjal, er að skipta glugganum. Hægt er að skipta glugganum lárétt, lóðrétt eða hvorttveggja. Þetta þýðir að þú getur séð allt að fjóra hluta skjalsins í einu.

Af hverju ættum við að vilja gera þetta? Ef þú ert til dæmis með risastórt töfluskjal og í einum reitnum er tala sem er notuð af þremur formúlum í öðrum reitum í skjalinu. Þá getur þú stillt skjalið af þannig að þú sjáir alla þessa reiti og svo getur þú breytt tölunni og séð niðurstöðuna úr formúlunum strax.

Glugganum skipt lárétt

Mynd 3: Gluggaskiptiröndin á lóðréttu skrunröndinni
Mynd 4: Músarbendillinn yfir Gluggaskiptiröndinni
  1. Farðu með músarbendilinn að skrunröndinni hægra megin, efst á henni er hnappur með þríhyrningi á.
  2. Fyrir ofan þennan hnapp er svört rönd (sjá mynd 3) farðu með músarbendilinn yfir þessa rönd, hann breytist í hvítt strik með tveimur örvum á. (sjá mynd 4).
  3. Smelltu og haltu hnappnum niðri, grá lína birtist þvert yfir síðuna. Dragðu músina niður og línan fylgir.

$Slepptu músarhnappnum og glugginn skiptist í tvo glugga sem hvor um sig hefur lóðrétta skrunrönd og hægt að fletta þeim óháð hvor öðrum.

Taktu eftir í mynd 2 að gildin á ‘Beta’ og ‘A0’ eru í efri hlutanum en útreikningar í þeim neðri. Þú getur svo flett efri og neðri hlutanum sjálfstætt. Þú getur því breytt gildunum á Beta og A0 og séð breytinguna á niðurstöðunum hvar sem er í skjalinu.

Þú getur á sama hátt skipt glugganum lóðrétt og flett þeim hlutum sjálfstætt líka. Ef þú skiptir glugganum bæði lóðrétt og lárétt verða til fjórir sjálfstæðir gluggar.

Glugganum skipt lóðrétt

Mynd 5: Gluggaskiptiröndin á láréttu skrunröndinni
  1. Farðu með músarbendilinn að skrunröndinni niðri, hægra megin á henni er hnappur með þríhyrningi á.
  2. Hægra megin við þennan hnapp er svört rönd (sjá mynd 84) farðu með músarbendilinn yfir hana.
  3. Haltu niðri músarhnappnum og grá lóðrétt lína birtist. Dragðu músina til vinstri og línan fylgir.
  4. Slepptu músarhnappnum og glugginn skiptist í tvo glugga sem hvor um sig hefur lárétta skrunrönd.
Athugaðu
Ef þú skiptir glugganum bæði lóðrétt og lárétt verða til fjórir sjálfstæðir gluggar,
hver með sína lóðréttu og láréttu skrunrönd.

Að fjarlægja gluggaskiptinguna

Til að fjarlægja skiptingu á glugga er hægt að gera eitthvað af eftirfarandi:

  • Tvísmella á skiptilínuna.
  • Smella á og draga skiptilínurnar aftur að endanum á skrunröndunum.
  • Velja Window > Split til að fjarlægja allar skiptingar í einu.
Ráð
Þú getur líka skipt glugganum með valmyndinni.  Settu fókusinn á reitinn sem er
neðan við og hægra megin við skiptinguna sem þú vilt fá og veldu Window >Split.