Glugginn í OpenOffice.org
Úr OpenOffice.is
Aðal glugginn í öllum forritum innan OOo er svipaður, þó að vissir partar hans séu mismunandi. Við skoðum hvert forrit í pakkanum sér síðar. Það sem er sameiginlegt er t.d. valstikan, Standard- og Formatting hnappastikurnar efst í glugganum og stöðulínan neðst.
Efnisyfirlit |
Valstikan
Valstikan er efst í glugganum fyrir neðan titilstikuna. Þegar atriði er valið af valstikunni, þá fellur niður undirvalmynd með ýmsum skipunum.
- Skrá: (File) inniheldur skipanir sem eiga við allt skjalið, s.s. opna (Open), vista (Save), og vista sem PDF (Export as PDF) .
- Breyta: (Edit) inniheldur skipanir sem gefa manni möguleika á að breyta skjalinu, eins og afturkalla (Undo) og finna og skipta (Find & Replace). Það inniheldur líka skipanir til að klippa, afrita og líma valda hluta skjalsins.
- Skoða: (View ) inniheldur skipanir sem stjórna því hvernig skjalið er sýnt á skjánum, eins og súmm (Zoom) og vefútlit (Web Layout).
- Setja inn: (Insert) inniheldur skipanir til að setja ýmislegt inn í skjalið, s.s haus (Header), fót (Footer), og mynd (Picture).
- Forma: (Format) inniheldur skipanir eins og stílar og formun (Styles and Formatting) og sjálfvirk formun (AutoFormat), sem hægt er að nota til að raða upp texta og öðru í skjalið.
- Tafla: (Table) sýnir allar skipanir til að búa til og breyta töflu í textaskjali.
- Tól: (Tools) inniheldur ýmis tól eins og stafsetning og málfræði (Spelling and Grammar), aðlaga (Customize), og valkostir (Options).
- Glugginn: (Window) inniheldur skipanir fyrir þann glugga sem opinn er.
- Hjálp: (Help) er með stiklur í OpenOffice.org Hjálparskrár, Hvað er þetta? (What’s This?), og upplýsingar um forritið.
Hnappastikur
OOo hefur nokkrar gerðir hnappastika: dokkaðar, fljótandi og afrífanlegar. Dokkaðar hnappastikur má færa á ýmsa staði og hægt er að láta þær fljóta. Fljótandi stikur er síðan hægt að dokka að vild.
Efsta dokkaða tólastikan (sjálfgefinn staður fyrir hana) er staðalstikan (Standard toolbar). Hún er eins í öllum forritum OpenOffice.org.
Stikan sem er næst efst (sjálfgefinn staður fyrir hana) er með formunartólin (Formatting toolbar). Þessi stika er innihaldsnæm (e. context-sensitive) og breytist eftir staðsetningu bendilsins eða því sem valið er. Til dæmis, ef bendillinn er ofan á mynd, þá koma á þessa stiku tól sem hægt er að nota á myndir, en ef bendillinn er í texta, þá eru þar tól fyrir textavinnslu.
Hnappastikur sýndar eða faldar
Til að sýna eða fela hnappastikur velur maður View > Toolbars og smellir síðan á nafn hnappastiku í listanum. Stikur sem eru opnar eru merktar með haki. Afrífanlegar hnappastikur eru ekki sýndar í þessum lista.
Undirvalmyndir og afrífanlegar stikur
Hnappar á hnappastikum með lítinn þríhyrning hægra megin við sig opna undirvalmyndir, afrífanlega hnappastiku, og aðrar aðferðir við að velja hluti, eftir því hvert tólið er. Mynd 1 sýnir hvernig hnappastika er rifin af teiknistikunni og látin fljóta.Hægt er að láta afrífanlegar stikur fljóta eða dokka þær hvar sem er í kringum gluggann eða á svæði með öðrum tólastikum. Til að færa fljótandi stiku er nóg að taka í titilslána á henni og draga hana. Sjá „Hnappastikur færðar“ hér fyrir neðan.
Hnappastikur færðar
Til að færa dokkaða hnappastiku er músarbendillinn settur á handfangið á stikunni, smellt með músarhnappnum og stikan dregin þangað sem hún á að vera. Þar er músarhnappnum sleppt (sjá mynd 2). Til að færa fljótandi stiku er nóg að taka í titilslá hennar og draga hana þangað sem hún á að vera (sjá mynd 3).Fljótandi hnappastikur
OOo inniheldur margar auka hnappastikur sem koma fram eftir aðstæðum og innihaldi þegar hugsanlega er þörf fyrir þá hnappa sem á þeim eru. Til dæmis, þegar bendillinn er í töflu, þá kemur fram fljótandi hnappastika með tólum fyrir töfluvinnslu og þegar bendillinn er í tölulista eða punktalista, þá opnast hnappastika fyrir þá. Það er hægt að dokka þessar stikur á jaðra gluggans ef maður vill.
Gluggar og hnappastikur dokkaðar og settar á flot
Hnappastikur og suma glugga, eins og Lóðsinn og Styles and Formatting má dokka. Hægt er að færa þá til, stækka og minnka og festa þá við jaðra gluggans.
Til að dokka glugga eða hnappastiku þarf að gera annað af eftirfarandi:
- Smelltu á titilslá glugga sem flýtur og dragðu hann út að jaðri gluggans þar til þú sérð útlínu gluggans birtast í aðal glugganum og þá sleppir þú músarhnappnum. Þetta getur virkað mismunandi í ýmsum tölvum eftir því hvernig gluggaskilgreiningar eru settar upp.
- Haltu niðri CTRL lyklinum á lyklaborðinu og tvísmelltu á autt svæði á glugganum sem flýtur. Þá dokkast hann á þann stað sem hann var dokkaður síðast. Ef þetta virkar ekki, prófaðu þá að tvísmella án þess að halda CTRL lyklinum niðri
Athugaðu: Styles and Formatting gluggann má líka dokka og losa með því að nota CTRL+tvísmella á gráa svæðið við hliðina á táknmyndunum ofarlega í glugganum.
Hnappastikum breytt
Hægt er að breyta hnappastikum á ýmsan hátt, þar með að velja hvaða hnappar eru sýnilegir og læsa staðsetningu stiku sem er dokkuð. Það er líka hægt að bæta við hnöppum og búa til nýjar hnappastikur.
Til að fá að breyta hnappastiku þarf að smella á örvatáknið á enda stikunnar eða á titilslá hennar (sjá mynd 5).Til að sýna eða fela hnappa er Visible Buttons valið af valmyndinni sem opnast. Þeir hnappar sem eru sýnilegir eru merktir með haki. Ef maður smellir á nafn þeirra, þá hverfa þeir eða koma í ljós eftir atvikum.
Innihaldsvalmynd í hægri músartakka
Hægt er að fá snögga valmynd sem er mismunandi eftir því hvar maður smellir með því að smella með hægri músarhnappnum. Þessar valmyndir eru innihaldsnæmar, þ.e. upp koma bara aðgerðir sem eiga við um það svæði sem þú smelltir á. Þessi innihaldsvalmynd er oftast fljótvirkasta aðferðin til að ná í þá aðgerð sam maður vill nota í það og það skiptið. Ef þú ert ekki viss hvar aðgerðin sem þú þarft að nota er á hnappastikunum, þá er oft hægt að finna hana með því að hægri-smella.

