Hjálp:Efnisyfirlit

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Ekki er ennþá búið að útbúa sérstakar hjálparsíður fyrir þennan vef. Almennt ætti að vera hægt að nálgast allt það efni sem hér er geymt af forsíðunni eða undirsíðum hennar. Til að fræðast um almenna notkun á kvikuvefjum er hægt að fara á vef MediaWiki, þar er mikið magn upplýsinga fyrir allar tegundir notenda slíkra vefja.

Til að setja inn efni þarf að skrá sig á vefinn. Það er gert hér efst til hægri á síðunni. Notendum er skipt upp í flokka með mismikil réttindi til innsetningar, eðlilega þarf að sýna fram á vissa kunnáttu áður en meiri réttindi fást. Ekki er hægt að setja inn efni nema að vera skráður inn í kerfið.

Almenn notkun

Efnisyfrlitið á forsíðunni ætti að gagnast flestum til að finna efnið sem þeir eru að leita að. Hægt er að skoða allar síður eftir efnisflokkum á sérstakri kerfissíðu fyrir alla þá flokka sem í notkun eru.

Neðst á hverri síðu er einnig borði með tenglum á ýmislegt sem varðar þennan vef.

Innsetning og breytingar á síðum

Ef þig vantar hjálp við innsetningu á efni eða breytingar á kvikusíðu á þessum vef, þá er boðið upp á slíka hjálp (í nýjum glugga) þegar farið er í breytingaham. Til að breytingahamurinn sé virkur þarf að vera skráður inn í kerfið. Einnig er hægt að skoða breytingahjálpina hérna. Sérstök hjálparsíða er fyrir innsetningu myndefnis, hana má skoða hérna.