Hvernig á að finna hjálp?
Úr OpenOffice.is
Þetta rit og aðrar OOo leiðbeiningar gera ráð fyrir að þú sért vel að þér um hvernig tölvan þín vinnur og hafir grunnfærni á hreinu eins og að setja forrit af stað, opna skjöl og vista þau.
Hjálparsíðurnar
Með OOo fylgir yfirgripsmikil hjálp. Það er þar sem þú ættir fyrst að leita svara þegar þú notar OOo.
Til að skoða allt hjálparkerfið er nóg að ýta á F1 lykilinn á lyklaborðinu eða velja Help > OpenOffice.org Help af valstikunni. Að auki getur þú valið um hvort vísbendingar, ítarlegar ábendingar og Hjáparhellan eru virk (með því að velja Tools > Options > General).
Ef vísbendingar eru virkar, þá er nóg að setja músarbendilinn á táknmynd til að sjá lítinn kassa með stuttri vísbendingu um hvað viðkomandi táknmynd gerir. Til að fá nákvæmari útlistun er hægt að velja Help > What's This? og síðan halda músarbendlinum yfir táknmyndinni.
Ókeypis aðstoð á vefnum
OpenOffice.org samfélagið þróar ekki bara forrit, heldur gefur það líka ókeypis aðstoð byggða á sjálfboðavinnu. Notendur OOo geta fengið ítarlega aðstoð á vefnum frá samkomum eins og fréttahópum, vefspjalli og póstlistum. Einnig eru til fjölmargir vefir sem notendur halda úti sem bjóða upp á ókeypis hjálp og leiðbeiningar
| Ókeypis OpenOffice.org aðstoð | |
| Póstlistar notenda | Ókeypis samfélagsaðstoð frá hundruðum reyndra notenda. Maður verður að vera skráður til að geta póstað skilaboð. Til að skrá sig þarf að senda tóman tölvupóst á users-subscribe@openoffice.org Skjalageymsla listans er hér: http://www.openoffice.org/servlets/SummarizeList?listName=users |
| Documentation Project | Sniðmát, leiðbeiningar heillaráð og annars konar skjöl http://documentation.openoffice.org/ Ennig má sjá Documentation wiki, http://wiki.services.openoffice.org/wiki/Documentation |
| Native Language Project | Upplýsingar, gögn og póstlistar á þínu tungumáli. http://projects.openoffice.org/native-lang.html |
| Mac aðstoð | Aðstoð við að setja upp og nota OOo á Mac OS X. http://porting.openoffice.org/mac/index.html |
| OpenOffice.org samfélagsspjall | Viðamikill spjallvefur um málefni OpenOffice.org frá uppsetningu til forritunar. http://user.services.openoffice.org/en/forum/ |
| OpenOffice.org fjölvaupplýsingar | Andrew Pitonyak, höfundur OpenOffice.org Macros Explained, heldur úti þessum vef þar sem finna má viðamiklar upplýsingar um fjölvamöguleika í OOo. Einnig er þar að finna heilmargar tilvísanir í aðra vefi: http://www.pitonyak.org/oo.php |
Einnig má lesa meira um aðstoð fyrir OOo á http://support.openoffice.org/index.html
Aðkeypt aðstoð og þjálfun
Ef þú vilt, þá getur þú keypt aðstoð og þjónustu. Hægt er að fá slíka þjónustu frá ýmsum þjónustuaðilum og söluaðilum sem sérhæfa sig í OpenOffice.org.
OOo er þjónustað af Sun Microsystems, Inc. samkvæmt Sun Software Support program (http://www.sun.com/service/serviceplans/software/index.jsp), þar sem finna má tvö stig aðstoðar: lengdur opnunartími og sólarhringsaðstoð þegar mikið liggur við.
Lista sjálfstæðra þjónustuaðila og hvaða þjónustu þeir veita í stafrófsröð eftir svæðum og löndum er að finna á vef openOffice.org (http://bizdev.openoffice.org/consultants.html).

