Hvernig á að sækja hugbúnaðinn?

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Margar nýjar tölvur koma tilbúnar með OpenOffice.org upp-sett. Að auki innihalda margar Linux útgáfur, svo sem Ubuntu, eintak af OpenOffice.org.

Ef þú þarft að setja forritið upp sjálfur, þá er það mjög auðvelt. Hægt er að hlaða niður OpenOffice.org uppsetningarpakkanum af vef verkefnisins (www.openoffice.org).

Uppsetningarpakkinn er um það bil 150MB. Þeir sem hafa hægvirka og takmarkaða tengingu við Internetið vilja hugsanlega frekar kaupa forritið á CD diski eða DVD diski frá söluaðila. Á vef verkefnisins er að finna lista yfir söluaðila, en þeir eru samt ekki á vegum OpenOffice.org eða tengdir því á neinn hátt.

Tenglar