Impress
Úr OpenOffice.is
Hvað er Impress?
Impress er glærusýningarforrit OpenOffice.org pakkans. Hægt er að búa til glærur sem innihalda margs konar atriði, þar með talið texta, doppu- og númeratexta, töflur, gröf, teikningar og mjög mikið úrval alls konar grafískra hluta. Impress hefur einnig stafsetningarforrit, samheitasafn, tilbúna textastíla og mikið úrval bakgrunnsmynda.g:VMA

