Kosturinn við OpenOffice.org
Úr OpenOffice.is
Hér eru nokkrir kostanna við að nota OpenOffice.org frekar en aðra skrifstofuvöndla:
- Engin leyfisgjöld. OOo er algjörlega ókeypis og má hver sem er dreifa því og nota án kostnaðar. Margir eiginleikar sem í öðrum skrifstofuvöndlum er hægt að kaupa sem viðbætur (eins og vistun á PDF formi) eru ókeypis með OOo. Það eru engin falin gjöld, hvorki nú eða seinna.
- Opinn hugbúnaður. Hver sem er má dreifa, afrita og aðlaga hugbúnaðinn eins og hann vill, samkvæmt notkunarskilmálum OOo.
- Óháð vélagerð. OOo3 virkar á ýmsum tölvugerðum og með mörgum stýrikerfum, svo sem Microsoft Windows, Mac OS X, Linux, og Sun Solaris.
- Víðfeðm tungumálastoð. Notendaviðmót OOo er til í meira en 40 tungumálum og OOo verkefnið gefur kost á yfirlestri, bandstrikasetningu og samheitaorðabók í yfir 70 tungumálum og mállýskum. Með OOo er líka hægt að setja upp texta með Complex Text Layout (CTL) og Right to Left (RTL) uppsettum tungumálum (eins og Hindi, Hebresku og Arabísku).
- Samræmt notendaviðmót. Allir hlutar hafa sama „útlit og áferð“ þannig að auðveldara er að læra á þá og nota.
- Samhæfing. Allir hlutar OpenOffice.org eru vel samhæfðir hver við annan.
- Allir hlutarnir samnýta yfirlestur og önnur tól, sem eru notuð eins í þeim öllum. Til dæmis eru teiknitólin sem notuð eru í Writer þau sömu og notuð eru í Calc, með svipuð, en viðbætt tól í Impress og Draw.
- Maður þarf ekki að vita hvaða forrit var notað til að búa til skjal (það er t.d. hægt að opna Draw skjal í gegnum Writer).
- Aðgreining. Venjulega, þegar maður lagar til valkost, þá hefur það áhrif á alla hluta. Í OOo, aftur á móti, þá er hægt að stilla valkosti í hverjum hluta fyrir sig, jafnvel hverju skjali fyrir sig.
- Samhæfing skráa. Auk sjálfgefins skjalforms, sem er Open Document Format, getur OOo vistað á PDF formi og sem Flash. Þar að auki er hægt að opna og vista á mörgum algengum skjalformum, þar með talið Microsoft Office, HTML, XML, WordPerfect, og Lotus 123 formum. Nýnæmi í OOo3 (með viðbót) er hæfileikinn til að opna og breyta sumum PDF skjölum.
- Engin festing við seljanda. OOo3 notar OpenDocument, sem er XML skjalform (eXtensible Markup Language) sem þróað hefur verið af OASIS (Organization for the Advancement of Structured Information Standards). Þessi skjöl er auðvelt að afpakka og lesa með hvaða textaritli sem er og uppsetning þeirra er opin og útgefin.
- Þú getur valið. Viðbætur, lagfæringar á hugbúnaði og útgáfudagar eru samfélagsknúnir. Þú getur sameinast samfélaginu og haft áhrif á afurðina sem þú notar.
Hægt er að lesa meira um OpenOffice.org, markmið þess, sögu, leyfiskilmála og aðrar skipulagsupplýsingar á vefsíðu OpenOffice.org.

