Millivísanir notaðar
Úr OpenOffice.is
Ef þú skrifar inn millivísun í annan hluta af sama ritvinnsluskjali, þá er mjög hætt við að þessi millivísun eigi eftir að úreldast, þ.e.a.s. blaðsíðunúmer eiga eftir að breytast eða aðrar breytingar verða þess valdandi að millivísunin eyðileggst. Mikilvægt er að skipta út öllum skrifuðum millivísun fyrir sjálfvirkar millivísanir og þegar þú vistar eða uppfærir sviðin þá munu allar millivísanir uppfærast sjálfkrafa og sýna nákvæmlega rétt blaðsíðunúmer. Millivísunar flipinn í Svið glugganum sýnir lista af hlutum eins og til dæmis: fyrirsagnir, bókamerki, tölur, töflur og númeraða hluti.
Til að setja inn millivísun í fyrirsögn eða annan texta:
- Smelltu á textann þar sem þú vilt að millivísunin komi fram.
- Ef Svið glugginn er ekki opinn, skaltu smella á Insert > Cross-reference. Í millivísunar glugganum skaltu velja hvaða tegund af texta (Fyrirsögn eða venjulegan texta) þú vilt vísa í. Hægt er að skilja þennan glugga eftir opinn ef þú ert að notar margar millivísanir.
- Smelltu á viðeigandi hlut í Selection listanum, sem sýnir allar tegundir af viðeigandi hlut. Í Format listanum getur þú valið hvernig uppsetningu þú vilt hafa á millivísuninni. Venjulega er notuð Reference (sem setur inn alla fyrirsögnina eða texta), Category and Number (sem setur inn orðið „Mynd“ eða „Tafla“ og númer en án myndartextans), Numbering (sem setur inn bara númer án orðsins „Mynd“ eða „Tafla“) eða Page (sem setur inn blaðsíðunúmer á texta sem vísað er í). Smelltu á Insert.

