Munur á OOo og MSOffice
Úr OpenOffice.is
Openoffice.org líkist að mörgu leyti Microsoft Office (MSOffice) útgáfunum á undan þeirri sem kennd er við 2008. Ekki er beinlínis hægt að halda því fram að um eftirlíkingu sé að ræða; viðmót og aðferðafræði þessara forritasafna sækir í sömu fyrirmyndir. Mismunurinn á milli þessara forritavöndla er kannski fyrst og fremst hugmyndafræðin á bak við það hvernig forritin eru skrifuð og hönnuð. Annars vegar opið, akademískt og ritrýnt (peer-review) hópvinnuferli, hins vegar lokað fyrirtækjaumhverfi með markaðs- og arðsemissjónarmið í fyrsta sæti. Hægt er að lesa sér meira til um hugmyndafræðina hér. Hvað snertir hinn almenna notanda liggur munurinn fyrst og fremst í eftirfarandi atriðum:
Efnisyfirlit |
Óbeinar samlíkingar
- Líkingamál skrifstofuforrita er að miklu leyti sótt í hugarheim ritlistar, myndlistar og ekki síst í hugtök prentiðnaðarins. Margt í þeim geira var þegar í markvissri notkun á 17. öld og sumt á sér uppruna mun fyrr, hjá Babýlóníumönnum og Egyptum.
- Nútíma tölvuviðmót eiga sér langan aðdraganda, ýmislegt hefur verið prófað og aðeins hluti þess hefur reynst nothæft við vinnu. Skjáborðsumhverfi eru dæmi um eitthvað sem hefur skotið rótum í vinnuumhverfinu, einnig er hægt að tala um margt í viðmótum skrifstofuforrita sem niðurstöðu rannsókna á því hvað sé notendavænst og mest afkastahvetjandi í þessari tegund vinnu.
- Microsoft hannaði ekki eitt og óstutt allar einingar MSOffice, heldur líkti eftir eða keypti einingar sem Openoffice.org studdist einnig við.
Viljandi líkingar
- Almennt vilja hönnuðir Openoffice.org að notandinn finni fyrir sem minnstum mun við að skipta yfir úr MSOffice. Því er reynt að ná fram við uppröðun margra vinnuferla í viðmótið.
- Openoffice.org getur opnað, skrifað og unnið með langflest skjöl sem koma úr MSOffice, samhæfni er lykilorð vegna alls hins mikla magns skjala sem er til á skjalasniðum MSOffice.
- Litastef forritanna er viljandi haft sem líkast. Táknlitir Writer eru hafðir sem líkastir því sem notað er fyrir hið sambærilega MS-Word, sama gildir um hin forritin. Hugmyndin er að almennur notandi eigi ekki að sjá mikinn sjónrænan mun við fyrstu sýn.
Þetta er gert til að einfalda málin fyrir notendur sem flakka á milli hugbúnaðar frá Openoffice.org og Microsoft, til dæmis þegar ein gerðin er notuð heima og önnur á vinnustað.
Mismunur (viljandi)
- Sumt í viðmóti OOo og MSO forrita er ekki eins vegna einkaleyfatakmarkana. Það ber að virða.
- Stundum telja hönnuðir OOo sig hafa fundið betri aðferð til að ná fram markmiðum notandans.
- Openoffice.org pakkinn er ekki með samskiptahugbúnað á borð við Outlook. Það er talið vera á öðru sviði - en verður hugsanlega bætt við í framtíðinni.
- Openoffice.org hefur Draw teikniforritið en MSOffice kemur með Publisher umbrotsforrit; þetta eru í grunninn ólíkir hlutir.
- Openoffice.org kemur með Math formúlugerðarforritinu, MSO hefur fátt sambærilegt.
- MSO hefur verið lengi í þróun og á tímabilum tekið upp ýmsa ferla sem ekki er séð að gagnist hinum almenna notanda; OOo hönnuðirnir hafa ekki séð ástæðu til að setja inn ýmsa hluti sem ekki eru á verksviði viðkomandi forrits eða sem eru til trafala í áframvinnslu skjala.
- Stundum eru það öryggismarkmið sem valda því að verkferlar í MSO eiga sér ekki samsvörun í OOo.
- Sumir verkferlar í Openoffice.org eru ekki til í MSOffice.
- Openoffice.org getur vistað beint á PDF-skráasnið, til þess þarf forrit frá þriðja aðila ef unnið er með MSOffice
- Openoffice.org er margkerfa hugbúnaður sem virkar eins á mörgum tegundum stýrikerfa; ekki er eingöngu horft á útkomuna í einni tegund stýrikerfis. Notandinn ætti ekki að sjá mikinn mun á OOo fari hann á milli mismunandi stýrikerfa. Þetta getur haft áhrif á útkomuna.
Mismunur (valfrjáls)
- Openoffice.org vistar ekki sjálfgefið á MSOffice skjalasniðunum, svo sem .doc (Word) eða .xls (Excel). Slíkt er óheimilt við dreifingu forritanna - en er hægt að breyta strax eftir uppsetningu, hafi viðkomandi áhuga á því. Leiðbeiningar um hvernig eigi að breyta þessu ættu að finnast á síðunni Vista_skjöl_á_MSOffice-sniði.
- Litir og áferð Openoffice.org forritanna eru ekki alveg nákvæmlega eins og í MSOffice; Openoffice.org notar litastef viðkomandi stýrikerfis eftir fremsta megni. Oft er hægt er að sækja sér litastef (theme) fyrir mörg stýrikerfi sem nálgast ákveðnar útgáfur af Windows.
- Hafi MSOffice aldrei verið sett upp á tölvunni heldur eingöngu Openoffice.org, má gera ráð fyrir að nokkrar leturgerðir vanti, sem venjulega fylgja MSO. Openoffice.org er með ansi góðan búnað til að finna sem líkast letur og skipta út þar sem það á við. En ekkert er fullkomið; sakni fólk þessara leturgerða er lítið mál að finna þær á netinu (jafnvel allar í einum pakka) og setja upp á tölvuna.
Annað
- Openoffice.org er ekki með svokallaðan gagnvirkan aðgerðaborða eins og er í nýjustu útgáfum MSOffice. Hvort slíkt verði á boðstólum verður tíminn að leiða í ljós. Miðað við vinsældir vefja sem kenna fólki að fela þennan borða og fá aftur gamla MSOffice-útlitið, þá er ólíklegt að slík virkni verði höfð sjálfgefin í Openoffice.org, heldur hugsanlega sem viðbótarpakki.
- Openoffice.org er hægt að setja upp á USB minnislykla, flakkara og sumar gerðir tónlistarspilara; þegar því er stungið í samband við tölvur er hægt að nota OOo með sínum stillingum hvar sem er. MSOffice er bundið við ákveðnar tölvur.


