Myndir settar í skjal
Úr OpenOffice.is
Myndir og grafík er hægt að fá úr ýmsum áttum. Hægt er að hlaða þær niður af Internetinu, skanna þær, eða búa þær til með myndvinnsluforriti. Þetta geta jafnvel verið myndir teknar á stafræna myndavél.
Efnisyfirlit |
Mynd sett inn úr skrá
Þegar mynd er til í skrá, þá er hægt að setja hana beint inn í Writer skjalið. OOo getur flutt inn ýmsar tegundir vector mynda (línuteikninga) og rastamynda (bitmap). Þær algengustu eru GIF, JPEG eða JPG, PNG, og BMP. Hægt er að sjá tæmandi lista yfir skjalgerðir sem hægt er að nota undir „Myndform sem ganga í OOo“.
Til að setja inn mynd úr skrá er þetta gert:
- Fyrst þarf að ákveða hvar myndin á að koma. Settu bendilinn þar sem þú vilt að myndin sé, eða nálægt þeim stað.
- Veldu Insert > Picture > From File af valstikunni. Þá opnast valglugginn eins og sést á mynd 39.
- Findu myndina sem þú vilt nota, smelltu á hana og síðan á Open.
Athugaðu Ekki hafa áhyggjur af nákvæmri staðsetningu myndarinnar núna, þar sem auðvelt er að laga það seinna eins og lýst er í „Myndir staðsettar í texta“.
Athugaðu Neðst í Insert picture talglugganum eru tveir hak-kassar. Ef hakað er við Preview, þá sést valda myndin í rúðunni hægra megin eins og sést á myndinni. Þannig er hægt að ganga úr skugga um að það sé rétta myndin sem verið er að velja. Link kosturinn er ræddur hér á eftir.
Tengt á mynd
Ef hakað er við Link kostinn í Insert picture talglugganum, þá býr Writer til tengi í viðkomandi mynd, frekar en að vista eintak af myndinni með skjalinu. Þetta verður til þess að myndin er sýnd þegar skjalið er skoðað, en þegar það er vistað, þá er slóð að myndinni vistuð með því – ekki myndin sjálf. Skjalið og myndin eru áfram tvær aðskildar skrár og þær eru settar saman aðeins þegar skjalið er opnað.
Tenging í mynd hefur tvo kosti og einn ókost:
- Kostur – Tengi í mynd minnkar stærð skjals þegar það er vistað vegna þess að myndin er ekki tekin með. Í nútíma tölvum með sæmilega mikið minni er skjalstærð yfirleitt ekki vandamál, nema skjalið innihaldi margar plássfrekar myndir. Writer getur höndlað þó nokkuð stórar myndir.
- Kostur – Hægt er að breyta myndinni sér án þess að breyta textaskjalinu vegna þess að tengin í myndina virka áfram þó myndin sé löguð til. Breytingin sést þá þegar skjalið er opnað aftur. Þetta getur verið stór plús, sérstaklega ef þú (eða einhver annar) ert að vinna við að bæta myndefnið.
- Ókostur – Ef þú sendir skjalið til einhvers annars, eða færir það á aðra tölvu, þá verður þú einnig að senda og færa myndirnar, því annars getur sá sem fær það ekki séð þær. Þú verður að hafa á hreinu hvar myndirnar eru geymdar með tilliti til textaskjalsins til að þú getir sagt viðtakandanum hvernig hann á að raða upp textaskjali og myndum í möppuna sína svo Writer geti fundið þær. Til dæmis getur verið að þú geymir myndir í undirmöppu sem þú kallar Myndir sem er í sömu möppu og skjalið. Þá verður viðtakandinn að hafa sams konar undirmöppu með sama nafn fyrir myndirnar, því annars finnur Writer þær ekki aftur.
Athugaðu Þegar maður notar sömu myndina ítrekað í sama skjalinu, þá gæti virst sem það sparaði pláss að nota tengi; þetta er hinsvegar ekki endilega rétt, því OOo festir ekki nema eitt eintak af hverri mynd í skjalið og notar það síðan aftur og aftur.
Myndir settar inn annars staðar frá
Hægt er að setja inn myndir annars staðar en úr skrá:
- úr myndvinnsluforriti
- frá skanna
- úr OOo Gallerý
Myndvinnsluforrit
Hægt er að nota ýmis myndvinnsluforrit til að laga til og breyta myndum. Í þessum forritum er hægt að afrita og síðan líma mynd eða hluta hennar inn í OOo skjal eins og sést á mynd 2. Þar sést að þetta hefur verið gert:- Veldu þann hluta myndarinnar sem þú vilt nota í myndvinnsluforritinu.
- Settu bendilinn yfir valda hlutann og ýttu á CTRL+C á lyklaborðinu til að afrita þetta svæði.
- Skiptu yfir í OOo Writer gluggann.
- Smelltu með músinni þar sem þú vilt að myndin komi.
- Ýttu á CRTL+V á lyklaborðinu til að líma myndina inn.
Skanni
Ef tölvan þín er tengd við skanna, þá getur OOo kallað á skannaforritið og sett mynd frá honum inn í skjalið. Til að setja þetta af stað setur þú bendilinn þar í skjalið sem myndin á að koma og velur Insert > Picture > Scan > Select Source.
Þó að þetta sé fljótt og auðvelt, þá er ekki líklegt að úr þessu komi hágæða mynd af réttri stærð. Það er líklegt að best sé að skanna mynd inn í sérhæft myndvinnsluforrit, vinna hana þar og síðan setja hana í Writer skjalið.
OpenOffice.org Gallery
Í Gallerýinu eru hlutir (e. objects) eins og myndir og hljóð, sem hægt er að setja inn í skjöl. Gallerýið er aðgengilegt í öllum OOo forritum.
Til að velja mynd úr Gallerýinu og draga hana inn á skjalið:- Smelltu á Gallery táknmyndina
(til hægri á Standard hnappastikunni) eða veldu Tools > Gallery.
- Veldu það þema sem inniheldur myndina sem þú vilt nota.
- Smelltu á myndina með vinstri músarhnappi, dragðu hana inna á skjalið og slepptu henni þar. Það er líka hægt að hægri-smella á hlutinn og velja Insert > Copy.
Á mynd 3 sést hvernig mynd er dregin inn á skjal úr Gallerýinu

