OpenOffice.is:Um
Úr OpenOffice.is
Um Openoffice.is
Openoffice.is er verkefni sem miðar að því að taka saman upplýsingar um OpenOffice.org skrifstofuforritin á íslensku ásamt leiðbeiningum af ýmsu tagi. Þó oft hafi verið búið að ræða þörfina á slíkum vef á ýmsum vettvöngum, þá kom þetta ekki til framkvæmda fyrr en stjórnendur Verkmenntaskólans á Akureyri tóku ákvörðun um að skipta yfir í OpenOffice.org hugbúnaðinn. Fleiri skólar og stofnanir hafa tekið sömu ákvörðun eða eru að skoða málin, auk einhverra fyrirtækja.
Vefurinn ætti að gagnast öllum þeim sem hafa áhuga á að notfæra sér þennan gæðahugbúnað, hvort sem um er að ræða einstaklinga, fyrirtæki eða stofnanir. Hlutar vefsins verða tileinkaðir kennsluefni fyrir skóla, en að sjálfsögðu verður öllum frjálst að nýta sér það. Framsetning efnisins verður væntanlega miðuð við að nýtast sem best hinum almenna notanda, það útilokar samt alls ekki að hér séu settar inn ýtarlegri sértækar upplýsingar fyrir lengra komna.
Hægt er að skrá sig og taka þátt í verkefninu hér.
Vefurinn er hýstur í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Hægt er að fá nánari upplýsingar um vefinn með því að senda póst á: Ritstjórn - sveinki hjá nett púnktur is
Fyrir tæknileg vandamál er það: Vefstjórn - webmaster hjá openoffice púnktur is

