Open og Save As talgluggarnir
Úr OpenOffice.is
Þú getur valið um hvort þú vilt nota Open og Save As talglugga frá OpenOffice.org eða þá sem fylgja stýrikerfi þínu. Til að skoða stillingarnar eða breyta þeim glugga sem OpenOffice.org notar:
- Veldu Tools > Options > OpenOffice.org > General.
- Hakaðu við í Use OpenOffice.org dialogs kassann.
Hnapparnir þrír efst til hægri í Save As glugganum eru þessir, frá vinstri til hægri:
- Fara upp eitt þrep í möpputrénu. Ef maður heldur þessum hnappi niðri í smá tíma, þá opnast listi yfir möppur ofar í trénu.
- Búa til nýja möppu.
- Sjálfgefin mappa.
Ef þú ert að opna OpenOffice.org skjal, sem hefur verið vistað á fleiri en einu formi, þá er hægt að nota Version felligluggann til að velja það skjalform sem þú vilt opna. Aðeins nýjasta útgáfa af Microsoft Office skjölum getur þó opnast.
Notaðu File type felligluggann til að velja það skjalform sem þú vilt opna eða vista.
Ef hakað er við Read-only, þá er aðeins hægt að skoða og prenta skjalið. Þá hverfa flestar hnappastikurnar og margir valmöguleikar í valstikunni eru óvirkir. Hægt er að smella á Edit File hnappinn á aðal hnappastikunni ef maður vill breyta skjalinu eitthvað.
Hægt er að opna skjöl af Internetinu með því að setja inn vefslóð.

