Prentun
Úr OpenOffice.is
Að prenta úr Calc er eins og að prenta úr öðrum OpenOffice forritum, með nokkrum undantekningum, sérstaklega varðandi undirbúning undir prentun.Prentglugginn (Mynd 1), sem opnast með File > Print, er þó með nokkrar stillingar sem eru sérhæfðar fyrir Calc svo sem hvaða blað á að prenta.
Options hlutinn af prentglugganum (Sem kemur upp þegar ýtt er á Options hnappinn neðst í vinstra horninu á prentglugganum) hefur tvo möguleika í viðbót, eins og sjá má á mynd 2: Prenta ekki út tómar síður (Suppress output of empty pages) og Prenta aðeins valin blöð (Print only selected sheets).Efnisyfirlit |
Blöð valin til prentunar
Hægt er að velja hvaða blöð á að prenta út. Þetta er þægilegt ef maður er með mjög stórt töfluskjal með mörgum töflum en vilt bara prenta ákveðnar töflur. Bókhaldari er til dæmis með skjal yfir kostnað og hver mánuður er á einu blaði. Hann vill svo prenta út bara nóvember og desember, þá gerir hann það á eftirfarandi hátt:
- Smellir á flipa nóvemberblaðsins, heldur niðri CTRL og smellir á flipa desemberblaðsins.
- Fer í File > Print velur options.
- Velur Print only selected sheets. Þessi stilling hefur áhrif á prentforskoðunina, útflutning (export) og prentun skjalsins. Smellir á OK
Athugaðu Stillingar undir Options hnappnum eru stillingar sem hafa áhrif á OpenOffice en stillingar undir Properties hnappnum eru stillingar á prentaranum sjálfum og geta verið breytilegar eftir gerð prentara.
Aðvörun Athugaðu að taka valið af blöðunum eftir prentun áður en ný gögn eru slegin inn. Svo ekki yfirskrifist gögn í blaðinu sem er ekki sýnilegt.
Síðuröð, hlutir og stærð valin
Hægt er að stilla síðuröð, stærð og hvaða hlutir prentast með því að:- Velja Format > Page.
- Velja Sheet flipann (mynd 3).
- Velja þær stillingar sem maður vill og smella á OK.
Síðuröð
Hægt er að velja í hvaða röð síður prentast. Þetta getur verið gott ef um er að ræða mjög stórt skjal, þá getur það sparað tíma að geta stjórnað prentröðinni. Ef tafla prentast á meira en eina síðu getur þú stjórnað hvort það prentast eftir dálkum eða línum. Þetta er hægt að sjá í glugganum á mynd 3.
Prentun
Hægt er að skilgreina hvaða hlutir skjalsins prentast út, þessir hlutir eru meðal annars:
- Dálka- og línuhausar (Column and Row headers)
- Töflunet (Grid) — Prentar jaðra reitana.
- Athugasemdir (Notes) — Prentar athugasemdir sem settar hafa verið inn í skjalið. Prentast á sér blað með tilvísun í reit.
- Hlutir og myndir (Objects and graphics)
- Myndrit (Charts)
- Teiknaðir hlutir (Drawing objects)
- Formúlur (Formulas) — Prentar formúlurnar sem eru í reitunum en ekki niðurstöðuna.
- Núllgildi (Zero Values) — Prentar reiti sem innihalda núll.
Athugaðu Þar sem þessar stillingar eru hluti af eiginleikum skjalsins þá eru þær líka hluti af stíl skjalsin og því hægt að búa til stíla með mismunandi prentstillingum.
Stærð
Stærðarstillingarnar (Scale) notast til að stjórna því á hve margar síður skjalið prentast. Þetta er bæði hægt að nota til að fækka og fjölga síðum sem skjalið prentast á. Textinn minnkar þá eða stækkar til að láta skjalið passa á fjöldann.
- Minnka/stækka útprentun (Reduce/Enlarge printout) — Minnkar eða stækkar skjalið sem hlutfall af upprunalegri stærð. Skjalið minnkar jafnt á hæð og breidd þannig að ef stillt er á 50% komast fjórar síður á eitt blað (þar sem bæði hæð og breidd verður helmingur af því sem það var.
- Láta útprentun passa á ákveðinn fjölda síðna (Fit print range(s) on number of pages) — Stillir hversu margar síður skjalið á að prentast á. Þessi stilling minnkar útprentunina en stækkar hana ekki.
- Láta útprentun passa á ákveðna breidd eða hæð (Fit print range(s) to width/height) — Stillir hversu margar síður skjalið á að vera á breidd og hversu margar síður á hæð það á að vera.
Prentsvæði notuð
Hægt er að nota prentsvæði á ýmsan hátt, til dæmis til að prenta aðeins út hluta úr blaði eða prenta bara út ákveðna dálka eða línur á hverri síðu.
Prentsvæði skilgreint
Prentsvæði er skilgreint á eftirfarandi hátt:
- Veldu þá reiti sem þú vilt gera að prentsvæði.
- Veldu Format > Print Ranges > Define.
Síðuskiptalínur birtast á skjánum.
Ráð Þú getur skoða hvernig prentsvæðið kemur út með því að fara í File > Page Preview. OOo sýnir aðeins þá reiti sem eru innan prentsvæðisins.
Prentsvæði fjarlægt
Það getur verið nauðsynlegt að fjarlægja prentsvæðið aftur, t.d. ef þú vilt prenta allt blaðið. Veldu Format > Print Ranges > Remove. Þetta fjarlægir öll prentsvæði á blaðinu. Þegar prentsvæði hefur verið fjarlægt birtast aftur sjálfgefnar síðuskiptalínur.
Ákveðin röð eða dálkur prentaður á allar síður
Ef tafla prentast á margar síður er hægt að láta ákveðna línur eða dálka endurtaka sig á öllum síðum. Til dæmis ef við viljum að línur 1 og 2 ásamt dálki A eigi að prentast á allar síður:
- Veldu Format > Print Ranges > Edit. Í reitinn Rows to repeat slærð þú inn hvaða línur eiga að endurtaka sig. Til að láta línur 1 og 2 endurtaka sig slærð þú inn $1:$2.
- Einnig er hægt að láta dálka endurtaka sig. Í reitinn Columns to repeat slærðu þá inn nöfn þeirra dálka sem eiga að endurtaka sig. Til dæmis, til að láta dálk A endurtaka sig slærð þú inn $A.
- Smelltu á OK.
Athugaðu Það er líka hægt að velja með músinn með því að smella á þá línu eða dálk sem maður vill, meðan glugginn er opinn. Þú þarft ekki að velja allan dálkinn eða línuna, það er nóg að smella á einn reit í viðkomandi línu/dálki.
Blaðsíðuskil
Stundum getur verið gott að geta ákveðið hvernig skjalið skiptist milli síða þegar það er prentað. Hægt er að setja handvirk blaðsíðuskil, bæði lárétt og lóðrétt.
Handvik blaðsíðuskil sett inn
Að setja inn blaðsíðuskil:
- Farðu á þann reit sem er neðan við blaðsíðuskilin sem þú vilt fá (eða hægra megin ef þú vilt setja lóðrétt blaðsíðuskil).
- Veldu Insert > Manual Break.
- Veldu Row Break (lárétt) eða Column Break (lóðrétt) og blaðsíðuskilin birtast.
Lárétt blaðsíðuskil (Row break)
Row Break gerir blaðsíðuskil fyrir ofan þann reit sem er valinn. Sem dæmi, ef reiturinn H15 er valinn, þá koma blaðsíðuskil á milli lína 14 og 15.
Lóðrétt blaðsíðuskil (Column break)
Column Break gerir síðuskil vinstra megin við þann reit sem er valinn, þannig að ef reitur H15 er valinn þá koma blaðsíðuskil á milli dálka G og H.
Ráð Til að gera blaðsíðskilin sýnilegri á skjánum er hægt að fara í Tools > Options > OpenOffice.org >Appearance og fletta niður í Spreadsheet hlutann og breyta litnum á blaðsíðuskilunum.
Að eyða blaðsíðuskilum
Hægt er að eyða blaðsíðuskilum á eftirfarandi hátt:
- Farðu á reit sem er upp við blaðsíðuskilin sem þú vilt losna við.
- Veldu Edit > Delete Manual Break.
- Veldu Row Break or Column Break.
Blaðsíðuskilin hverfa.
Athugaðu Það geta verið mörg blaðsíðuskil á hverju blaði og til að losna við þau öll þarf að eyða hverju fyrir sig. Þetta getur orðið svolítið ruglingslegt, því ef það eru til dæmis lóðrétt síðuskil á blaðinu og þú ferð í Edit > Delete Manual Break þá er það kannski óvirkt, vegna þess að það verður að velja reitinn sem er hægra megin við blaðsíðuskilin. Sem dæmi, ef þú er í H15 og setur blaðsíðuskil þá verður þú að vera í H-dálk til að fjarlægja þau, það er ekki hægt að vera í G-dálki þó hann sé alveg upp við síðuskilin.
Hausar og fætur
Hausar og fætur eru texti sem prentast efst og neðst á hverja síðu, utan við töflusvæðið sjálft. Hausar og fætur eru skilgreind með stíl síðunnar.
Að setja inn haus eða fót:
- Vertu á því blaði sem hausinn eða fóturinn á að vera á og veldu Format > Page.
- Veldu flipann fyrir haus (Header) eða fót (Footer). Sjá mynd 5.
- Stilltu á Header on.
Hér getur þú líka stillt spássíur, bil frá texta og hæð haussins. Hægt er að láta Calc stilla hæð haussins sjálfvirkt með því að velja AutoFit height.
- Spássíur (Margins)
- Spássíustillingin stillir hversu nálægt brún síðunnar hausinn/fóturinn fer.
- Bil frá texta (Spacing)
- Stillir hversu mikið bil er frá töflusvæðinu (aðaltexta skjalsins) að hausnum eða fætinum.
Hæð (Height) Stillir hæðina á hausnum/fætinum.
Útlit hausa og fóta
Hægt er að breyta útliti hausa og fóta með því að fara í More.
Í þessum glugga sem sýndur er á mynd 6 er hægt að breyta línum og bakgrunnslit haussins.Texti í haus og fæti
Í haus og fæti eru þrír dálkar til að setja texta í. Hægt er að skrifa í þessa dálka með því að fara i Edit hnappinn í haus/fót glugganum (mynd 4). Þá kemur upp glugginn á mynd 7.- Svæði
- Svæðin þrjú, Left Area, Center Area og Right Area eru óháð hvert öðru og hægt er að slá inn hvaða texta sem er þar.
- Header (eða Footer)
- Í þessum lista er hægt að velja nokkra tilbúna hausa/fætur. En það er svo hægt að breyta hausunum að vild með hnöppunum hér að neðan. (Glugginn fyrir fót er alveg eins.)
- Nýr haus
- Smelltu í það svæði sem þú vilt breyta. Notaðu svo hnappana hér að neðan til að gera þær breytingar sem þú vilt.

