Skjal vistað

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Til að vista nýtt skjal:

  1. Veldu File > Save.
  2. Þegar Save As talglugginn opnast, ritarðu nafn skjalsins og athugar að skjalgerðin sé rétt (ef það á við).

Til að vista opið skjal með gildandi nafni velur þú File > Save. Þetta yfirskrifar síðustu vistuðu útgáfu skjalsins.

Læsing með lykilorði

Til að koma í veg fyrir að hver sem er geti opnað heilt skjal er hægt að vista það með lykilorði. Notaðu valkostinn á Save As talglugganum til að setja inn lykilorð. Þessi kostur er bara mögulegur fyrir skjöl sem vistuð eru á OpenDocument formi eða á eldra OpenOffice.org 1.x formi.

Lykilorð
  1. Í Save As talglugganum hakar þú í kassann við Save with password, og smellir síðan á Save. Nú opnast nýr talgluggi:
  2. Ritaðu sama lykilorðið í Password og Confirm reitina og smelltu síðan á OK. Ef lykilorðin eru þau sömu, þá er skjalið vistað með lykilorðalæsingu. Ef lykilorðin eru ekki eins, þá færðu skilaboð um að setja þau inn aftur.
Athugaðu:
Lykilorð verða að innihalda minnst 5 tákn og OK hnappurinn virkar ekki fyrr en þau eru komin. 

OOo notar mjög sterka dulkóðunartækni sem gerir það næstum ómögulegt að brjótast inn í skjal sem er varið ef þú skyldir týna lykilorðinu.

Skjal vistað sjálfvirkt

Þú getur valið að láta OpenOffice.org vista skjöl sjálfvirkt. Sjálfvirk vistun, eins og önnur vistun, skrifar nýju útgáfuna yfir þá gömlu. Til að stilla inn sjálfvirka vistun er eftirfarandi gert:

  1. Veldu Tools > Options > Load/Save > General.
  2. Hakaðu við Save AutoRecovery information every, og ritaðu tímann á milli vistana í reitinn fyrir aftan.