Unnið með blöð

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Eins og annað í Calc þá er hægt að bæta við og eyða blöðum.

Nýtt blað sett inn

Mynd 1: Nýtt blað búið til.
Það eru nokkrar leiðir til að setja inn nýja töflu. Fyrsta skrefið er samt alltaf að velja það blað sem á að vera við hliðina á nýja blaðinu. Síðan er hægt að nota eftirfarandi aðferðir til að setja inn nýtt blað.
  • Veldu Insert á valstikunni og smelltu á Sheet, eða
  • Hægri-smelltu á flipa blaðsins sem á að vera við hliðina á nýja blaðinu og veldu Insert Sheet, eða
  • Smelltu á auða svæðið hægra megin við flipana (sjá mynd 1).
Mynd 2: Insert Sheet glugginn
Allar þessar aðferðir birta Insert Sheet gluggann (mynd 2). Þar getur þú valið hvort blaðið lendir framan eða aftan við valið blað. Þú getur sett inn mörg blöð en ef þú ert aðeins að setja inn eitt þá getur þú gefið því nafn.

Blöðum eytt

Hægt er að eyða stökum blöðum eða mörgum í einu.

Einu blaði eytt
Hægri-smelltu á flipa þess blaðs sem þú vilt eyða og veldu Delete Sheet úr valmyndinni. Einnig er hægt að velja Edit > Sheet > Delete.
Mörgum blöðum eytt
Til að eyða mörgum blöðum í einu þarf að velja þau blöð sem á að eyða með einhverri af þeim aðferðum sem lýst var hér framar. Eyða svo með sömu aðferðum eins og um eitt blað væri að ræða.

Nafni á blaði breytt

Sjálfgefið nafn á blöðum í Calc er SheetX þar sem X er tala. Þetta er í lagi ef um lítið töfluskjal er að ræða en ef skjalið inniheldur mörg blöð þá getur þetta kerfi orðið flókið.

Hægt er að breyta nafni á blaði með því að:

  • Setja nafn í nafnreitinn í Insert Sheet glugganum þegar þú setur inn nýtt blað, eða
  • Hægri-smella á flipa blaðsins og velja Rename Sheet úr valmyndinni.
Athugaðu
Í nafn á blaði má nota nánast öll tákn. Undantekning eru þau tákn sem ekki má
nota á töflur í MS Excel. Þetta er gert vegna samræmingar. Ef reynt er að nota
þessi tákn kemur villumelding. Þessi tákn eru meðal annara \ / ? * [ ]  :