Unnið með skjöl

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

Í fyrsta kaflanum (Almennt) eru leiðbeiningar um hvernig á að búa til nýtt skjal, opna eldra skjal og vista.

Skjal vistað sem Microsoft Word skjal

Til að vista skjal sem Microsoft Word skjal:

Skjal vistað á Microsoft Word formi
  1. Vistaðu skjalið fyrst á OOo formi (.odt). Ef þú gerir það ekki, þá munu síðustu breytingar sem þú gerðir á skjalinu aðeins koma fram í Microsoft Word útgáfu þess.
  2. Veldu File > Save As. Þá opnast Save As glugginn (Sjá mynd).
  3. Í Save as type felliglugganum velur þú þá Word útgáfu sem þú vilt nota.
  4. Smelltu á Save.

Héðan frá vistast allar breytingar sem þú gerir á skjalinu aðeins í Word útgáfu þess. Þú ert í raun búinn að breyta nafni skjalsins. Ef þú vilt halda áfram að vinna við OOo útgáfu skjalsins, þá verður þú að opna hana aftur


Ráð:
Til að vista skjöl sjálfgefið á Microsoft Word formi skaltu velja Tools > Options > Load/Save.
Tenglar