Viðbót A – Flýtilyklar á lyklaborði

Úr OpenOffice.is

Stökkva á: flakk, leita

1 - Inngangur

Hægt er að nota OpenOffice.org (OOo) án þess að hafa benditæki eins og mús eða snertifleti, með því að nota innbyggða flýtilykla. Hægt er að framkvæma flóknustu aðgerðir ein og t.d. að dokka stikur eða setja þær á flot eða breyta staðsetningum og stærðum hluta með lyklaborðinu einu. Og þó OOo hafi fjölbreytt úrval flýtilykla, þá hafa einstök forrit auka sett af slíkum lyklum sem eiga við þær aðgerðir sem framkvæmdar eru í þeim.

Til að fá aðstoð við notkun flýtilyklanna eða hvernig á að nota OOo bara með lyklaborðinu er hægt að rita orðin „shortcut“ eða „accessibility“ í hjálpina.

Auk þess að nota þá flýtilykla sem nefndir eru hér í þessum viðbæti, þá getur hver og einn notandi búið til sína eigin. Hægt er að setja flýtileiðir fyrir venjulegar Impress aðgerðir á lykla eða búa til fjölva og vista þá til notkunar í Impress eða öllum OpenOffice.org vöndlinum.

Til að aðlaga flýtilykla að notanda er Customize talglugginn notaður, eins og lýst er í kafla 11 (Impress sett upp og aðlagað).


2 - Stjórnlyklar fyrir Impress

Flýtilykill Aðgerð
F2 Velja textatól
F3 Losa hóp ungroup)
CTRL+F3 Fara út hóp
SHIFT+F3 Fjölfalda
F4 Staðsetning og stærð
F5 Skoða glærusýningu
CTRL+SHIFT+F5 Lóðs
F7 Yfirlestur
CTRL+F7 Samheiti
F8 Breyta punktum
CTRL+SHIFT+F8 Láta texta passa í ramma
F11 Stílar og formun

3 - Aðrir flýtilyklar í Impress

Flýtilykill Aðgerð
Örvalykill Færa valinn hlut eða síðuna í þá átt sem örin bendir.
CTRL+Örvalykill Færa glæruna í venjulegri skoðun.
SHIFT+draga Festir færslu á hlut við lárétt eða lóðrétt.
CTRL+draga (Með Copy þegar færslukostur er virkur) Haltu niðri CTRL og dragðu hlut til að búa til afrit af hlutnum.
ALT lykill Haltu niðri ALT til að draga eða breyta stærð hlutar með því að draga frá miðju hlutarins út.
ALT+smella Velja hlutinn fyrir aftan hlyut sem er valinn.
ALT+SHIFT+smella Velja hlut sem er fyrir framan hlut sem er valinn.
SHIFT+smella Velja hluti til hliðar við eða textabút. Smelltu fremst í textanum, færðu þangað sem þú vilt enda valið og haltu niðri SHIFT lyklinum á meðan þú smellir.
SHIFT+draga (þegar stærð er breytt) Haltu niðri SHIFT á meðan þú dregur til að breyta stærð og viðhalda hlutföllum á meðan.
TAB Velja hluti í þeirri röð sem þeir voru búnir til.
SHIFT+TAB Velja hluti í öfugri röð sem þeir voru búnir til
ESC Hætta í þeirri aðgerð sem er í gangi.
ENTER Setja inn handfang í nýja sýningu (aðeins ef frame er valið).
CTRL+ENTER Fara á næsta textahlut á glærunni. Ef það eru ekki fleiri textahlutir á glærunni, eða ef þú ert á síðasta textahlut, þá er ný glæra búin til á eftir þeirri sem þú ert á. Nýja glæran notar sama umbrot og sú sem þú ert á.